Viðskipti innlent

Helgi Bjarnason ráðinn forstjóri VÍS

Hörður Ægisson skrifar
Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.
Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.
Helgi Bjarnason hefur verið ráðinn forstjóri tryggingafélagsins VÍS. Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem VÍS birti í Kauphöllinni fyrr í kvöld en Helgi tekur við starfi forstjóra VÍS af Jakobi Sigurðssyni sem sagði starfi sínu lausu 19. apríl síðastliðinn.

Áður en Helgi hóf störf hjá Arion banka var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Sjóvá Almennra auk þess sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra Sjóvár Almennra líftryggingar. Fyrir það starfaði hann sem tryggingastærðfræðingur hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu. Þá hefur Helgi gegnt stjórnarformennsku í Verði tryggingum hf. og Verði líftryggingum hf.

Í tilkynningu VÍS er haft eftir Helga: „Það er einstaklega spennandi verkefni að taka við stjórn VÍS í dag en rekstur tryggingafélaga hefur verið að breytast hratt á undanförnum árum, meðal annars með hraðri þróun upplýsingatækni og nánari tengingum við fjármálamarkaði. VÍS, sem stærsta og öflugasta tryggingafélag landsins, er vel í stakk búið að laga sig að  slíkum breytingum. Þannig tryggjum við farsælan rekstur til framtíðar á sama tíma og við höldum á lofti því sem ávallt hefur verið leiðarljós félagsins að tryggingar snúist um fólk.

Ég hlakka til að vinna með öflugum hópi starfsfólks að áframhaldandi þróun og útvíkkun þeirrar þjónustu sem VÍS veitir þeim tugþúsundum Íslendinga sem eru í viðskiptavinahópi félagsins.“

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður VÍS, segir mikinn feng fyrir VÍS að fá Helga til starfa.

„Hann býr yfir yfirgripsmikilli og djúpri þekkingu og reynslu af jafnt tryggingamarkaði sem og fjármálamarkaði. Í starfi sínu hjá Arion banka hefur hann m.a. tekið þátt í þróun nýrra stafrænna lausna en VÍS hefur í nýrri stefnumótun lagt aukna áherslu á framfarir á því sviði. Stjórn VÍS er sannfærð um að undir hans stjórn muni félagið halda áfram að sækja fram sem leiðandi tryggingafélag á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×