Innlent

Skipar nefnd til að kortleggja þjónustu við flóttafólk

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sérstaklega skal hugað að þætti sveitar­félaga og frjálsra félagasamtaka við móttöku flóttafólks.
Sérstaklega skal hugað að þætti sveitar­félaga og frjálsra félagasamtaka við móttöku flóttafólks. Vísir/Stefán
Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað nefnd sem kortleggja á núverandi þjónustu við þá sem fengið hafa stöðu flóttafólks eftir hælismeðferð og gera tillögu að samræmdu móttökukerfi fyrir flóttafólk.

Sérstaklega skal hugað að þætti sveitar­félaga og frjálsra félagasamtaka við móttöku flóttafólks, tengslum milli stjórn­sýslustofnana og fræðslu fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem kemur að móttöku flótta­fólks.

Nefndina skipa:

  • Kristján Sturluson, án tilnefningar, formaður  
  • Anna Guðrún Björnsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Guðlaug Hrönn Pétursdóttir, tilnefnd af Vinnumálastofnun  
  • Hrafnhildur Kvaran, tilnefnd af Rauða krossinum á Íslandi  
  • Íris Björg Kristjánsdóttir, tilnefnd af innanríkisráðuneytinu 
  • Páll Ólafsson, tilnefndur af Barnaverndarstofu 
  • Rúnar H. Haraldsson, tilnefndur af Fjölmenningarsetri 
  • Sigurður Örn Eyjólfsson, tilnefndur af Útlendingastofnun  
Starfsmaður nefndarinnar er Linda Rós Alfreðsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×