Innlent

Markaðssetningu erlendra veðbanka sé beint að íslenskum ungmennum

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Óvenju margir tippuðu á leik Fram og Fylkis í öðrum flokki karla.
Óvenju margir tippuðu á leik Fram og Fylkis í öðrum flokki karla. Mynd/Ásgrímur Helgi Einarsson
Erlendir veðbankar sem bjóða tippurum upp á að veðja á leiki yngri flokka í íslenskri knattspyrnu gera það til þess að lokka inn yngri íslenska tippara. Þetta er mat Péturs Hrafns Sigurðssonar, deildarstjóra hjá Íslenskum getraunum.

Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að íslenskir tipparar hafi mokgrætt á leik Fylkis og Fram í 2. flokki í knattspyrnu karla. Höfðu tipparar upplýsingar um liðsskipan sem veðbankar höfðu ekki.

„Spurningin snýst um hvers vegna erlendu fyrirtækin bjóða upp á þessa leiki ef þau eru að tapa á þeim. Það er enginn í rekstri til að tapa,“ segir Pétur. Hann segir veðbankana líta á tapið sem markaðs­kostnað. Þá segir hann að rannsóknir Daníels Ólafssonar, prófessors við HÍ, sýni fram á orsakasamhengi þess að vinna stórt í byrjun og þróa með sér spilafíkn.

ARN Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Kópavogur
Pétur segir veðmálin auka líkur á hagræðingu úrslita. Þegar tippari þarf að bíða lengi án sigurs gæti hann leitað til leikmanna um að hagræða úrslitum.

Málþing um hættuna af hagræðingu úrslita fer fram í HR klukkan 12 í dag. Arnar Þór Jónsson, lektor við lagadeild HR og umsjónarmaður málþingsins, segir veðmál orðin praktískt vandamál. „Þetta er farið að ógna heilbrigði íþróttanna. Menn hafa áhyggjur af þessu,“ segir hann.

Arnar bendir á að freistingar fyrir leikmenn hafi aukist með tilkomu veðmála um jaðarþætti á borð við innköst. „Þeir gætu sagt við sjálfa sig að þeir ráði engu um úrslitin þótt þeir sparki boltanum út af.“

Arnar Þór segir enn fremur að þetta hljóti að hrista allan grundvöll íþrótta í heiminum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Tipparar mokgræddu á unglingaleik í Árbæ

Fjárhættuspilarar fá hagstæða stuðla á leiki í 2. flokki þar sem veðmála­fyrir­tæki vita síður af meiðslum og fjarvistum leikmanna. KSÍ er uggandi yfir veðmálum í yngri flokkum. Faðir leikmanns óttast að leikmönnum verði mútað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×