Metsamdráttur varð í framleiðslu á kolum í heiminum á síðasta ári. Kolin hafa orðið undir í samkeppninni við aðra orkugjafa auk þess sem aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hefur dregið úr notkun þeirra.
Kínverjar eru stærstu notendur kola í heiminum en í fyrra hafði ekki verið brennt minna af þeim þar í sex ár. Í Bandaríkjunum var kolanotkun sú minnsta frá því á 8. áratug síðustu aldar samkvæmt árlegri skýrslu BP um þróun í orkumálum.
Í heildina dróst eftirspurn eftir kolum saman um 1,7% í fyrra, borið saman við 1,9% árlega aukningu að meðaltali frá 2005 til 2015, að því er kemur fram í frétt Bloomberg.
Á hinn bóginn jókst notkun á olíu um 1,6% á heimsvísu í fyrra.
Kol undir í samkeppni við jarðgas og endurnýjanlega orkugjafa
Það eru ekki aðeins loftslagsaðgerðir sem hafa leitt til minnkandi eftirspurnar eftir kolum, verstu uppsprettu gróðurhúsalofttegundanna sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni. Kol hafa orðið undir í samkeppni við jarðgas og endurnýjanlega orkugjafa eins og vind- og sólarorku.
Spencer Dale, aðalhagfræðingur BP, segir að afleiðing samdráttarins sé að losun manna á gróðurhúsalofttegundum hafi staðið í stað, þriðja árið í röð í fyrra.
Þrátt fyrir það er losun manna á gróðurhúsalofttegundum enn sú mesta frá iðnbyltingu. Draga þarf verulega úr losuninni á allra næstu árum ef menn ætla sér að eiga nokkra von um að ná yfirlýstum markmiðum Parísarsamkomulagsins um að halda hnattrænni hlýnun innan við 2°C, og helst 1,5°C, á þessari öld.
Kolaframleiðsla hefur aldrei dregist meira saman
