Golden State sleppir ekki takinu á Clippers | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2017 07:30
Golden State Warriors vann fimmta leikinn í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Los Angeles Clippers, 133-10, á útivelli. Þetta er níundi sigur Golden State gegn Clippers í röð en síðarnefnda liðið er í fjórða sæti vestursins, tólf sigrum á eftir toppliðinu. Eftir ellefu þrista leik fyrr í vikunni var Steph Curry aðeins rólegri í nótt og hitti aðeins úr þremur þriggja stiga skotum af tíu. Hann skoraði aftur á móti 29 stig og var stigahæstur í sínu liði auk þess sem hann gaf ellefu stoðsendingar. Kevin Durant var nálægt þrennu með 26 stig, tíu stoðsendingar og átta fráköst en Klay Thompson skoraði 21 stig og hitti úr þremur af sex þriggja stiga skotum sínum. Blake Griffin var stigahæstur Clippers-liðsins með 31 stig auk þess sem hann tók átta fráköst en besti sjötti maður deildarinnar, Jamal Crawford, kom sterkur inn af bekknum með 21 stig. Dwight Howard fór á kostum fyrir Atlanta Hawks er hann sneri aftur í fyrsta sinn til Houston þar sem hann spilaði síðast. Hann stóð uppi sem sigurvegari með sínu liði en í endurkomu hans til Houston vann Atlanta endurkomu sigur, 113-108, eftir að vera meðst 25 stigum undir. Howard skoraði 24 stig og tók 23 fráköst en Tim Hardaway Jr. var stigahæstur gestanna með 33 stig. James Harden skoraði 41 stig fyrir Houston auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf átta stoðsendingar en Houston-liðið er í þriðja sæti vestursins, tveimur sigrum á eftir San Antonio Spurs sem vann í nótt.Úrslit næturinnar: Washington Wizards - LA Lakers 116-108 Houstno Rockets - Atlanta Hawks 108-113 San Antonio Spurs - Philadelphia 76ers 102-86 Golden State Warriors - LA Clippers 133-120
NBA Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira