Körfubolti

Martin og félagar komnir í sumarfrí

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin átti góðan leik.
Martin átti góðan leik. vísir/stefán
Martin Hermannsson og félagar í franska B-deildarliðinu Charleville-Mézieres eru komnir í sumarfrí eftir tap fyrir Nantes, 77-69, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í dag.

Martin missti af fyrri leiknum, sem Charleville-Mézieres tapaði 78-88, vegna meiðsla.

Íslenski landsliðsmaðurinn var mættur út á gólfið í dag og átti fínan leik.

Martin skoraði 15 stig og gaf átta stoðsendingar í leiknum. Hann var stoðsendingahæstur á vellinum. Martin tapaði boltanum hins vegar sex sinnum og brenndi af fjórum af þeim átta vítaskotum sem hann tók.

Frábæru tímabili hjá Martin er lokið. Íslenski landsliðsmaðurinn var í hópi bestu leikmanna B-deildarinnar og fær væntanlega tækifæri með stærra liði á næsta tímabili.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×