Bundið slitlag á Norðfjarðarflugvelli mun auðvelda sjúkraflug Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 11:41 Samgöngumálaráðherra klippir á borðann og opnar Norðfjarðarflugvöll. Stjórnarráðið
Nýtt bundið slitlag skiptir sköpum fyrir Norðfjarðarflugvöll sem opnaði aftur í gær eftir þó nokkrar framkvæmdir. Áður hafði verið þar malarbraut en ástand hennar hefur farið versnandi undanfarin ár og því þótti brýnt að setja bundið slitlag til að hægt væri að nota flugvöllinn fyrir sjúkraflug. Þá er einnig stefnt á að bjóða upp á útsýnisflug frá vellinum. Sextíu ár er síðan flugvöllurinn var lagður. Áætlunarflug um völlinn lagðist niður árið 1997. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórnarráðinu. Kostnaður við framkvæmdirnar voru 158 milljónir króna og lögðu ríkið og sveitarfélagið saman fjármagn til verksins. Þá fjármögnuðu Fjarðarbyggð, Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað og Síldarvinnslan hf. helming af kostnaði á móti ríkinu. Fjarðarbyggð sagði þetta vera hluti af því að styrkja heilbrigðisþjónustu. Jón Gunnarsson, samgönguráðherra, klippti á borða við athöfnina í gær og tóku margir menn til máls og fögnuðu breytingunum. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá ISAVIA, Guðjón Hausson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Jón Björn Hákonarson ávörpuðu allir samkunduna. Þá stýrði Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar athöfninni. Þá var sýnt listflug að lokinni athöfninni og gestir gátu skoðað sjúkraflugvél Mýflugs.
Mest lesið „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Innlent Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Innlent Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Erlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Innlent Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Innlent Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Innlent Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið Innlent Fleiri fréttir „Í mínum huga alveg útilokað“ Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Vestmannaeyjabær höfðar skaðabótamál á hendur Vinnslustöðinni Bóndi þvingaður til að afhenda hrút Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Segja Grindavík alls ekki ónýta og vilja hleypa fólki inn Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Dýrmætu vasaúri og silfurfesti stolið af byggðasafni „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Fyrsta makrílfarmi vertíðarinnar landað í Neskaupstað Kári Garðarsson ráðinn framkvæmdastjóri Samtakanna 78 „Að láta taka sig ósmurt? Takk, en nei takk“ Albert neitaði sök Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Læknaskortur og sjávarháski Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu Ekki náttúruspjöll heldur forvarnir „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ „Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Sjá meira