Jólin komu snemma í þetta skiptið Benedikt Bóas skrifar 17. janúar 2017 06:00 Íslendingar ferðuðust mikið, versluðu fyrr en áður. vísir/anton
Neyslumynstrið í jólaversluninni hefur breyst nokkuð og fór fyrr af stað fyrir nýliðin jól en áður. Hærra hlutfall jólaverslunar fór fram í nóvember en áður hefur sést. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Íslendingar keyptu meira á netinu fyrir þessi jól en áður. Í desember jókst fjöldi þeirra pakkasendinga sem Íslandspóstur sá um dreifingu á frá útlöndum, og ætla má að sé vegna netverslunar, um 64 prósent frá sama mánuði árið áður. Í nóvember og desember samanlagt nam þessi ársaukning pakkasendinga 61 prósenti. Mest aukning sendinga var frá Kína og öðrum Asíulöndum. Flestir virðast kaupa sér föt og skó en þannig varð 1,7% samdráttur í veltu fataverslana og 2,8% samdráttur í skóverslun frá árinu á undan. Á sama tíma jókst velta í húsgögnum um 31,9%, velta stórra raftækja jókst um 12,6% og í byggingavöruverslunum var aukningin 21,8%. Íslendingar ferðuðust einnig mun meira en áður fyrir þessi jól. Mikil aukning var í ferðir til útlanda síðustu tvo mánuði ársins. Brottfarir Íslendinga til útlanda gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, samkvæmt talningu Ferðamálastofu, voru alls 86.424 í nóvember og desember, sem er 26% aukning í fjölda farþega frá sömu mánuðum árið áður. Ferðamenn greiddu í desember með greiðslukortum sínum í íslenskum verslunum fyrir liðlega tvo milljarða króna. Það er fjórðungsaukning frá desember árið áður. Stærstur hluti erlendrar kortaveltu í verslunum í desember var til kaupa á dagvöru, eða 467 milljónir.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira