Innlent

Heldur upp á 20 ára afmæli Vegamóta með því að loka staðnum

Helga María Guðmundsdóttir skrifar
Miklar framkvæmdir eiga sér stað á Vegamótastíg. Um er að ræða 39 herbergja hótel með veitingastað á jarðhæð og kjallara. Áætluð verklok eru í júlí 2018. Búið er að loka Vegamótastíg og er byggingakrani staðsettur á miðri götunni. En hver er framtíðin hjá Vegamótum. 

Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar segir verslunareigendur og íbúar fái upplýsingar um framkvæmdir af þessu tagi en það sé alltaf erfitt á meðan framkvæmdir standa yfir en að framkvæmdum loknum þá lifnar allt við. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×