Leikjavísir

Lögðu upp með stillanlega typpastærð frá upphafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Framleiðendur leiksins Conan Exiles segjast hafa tekið þá ákvörðun snemma í framleiðsluferlinu að hægt yrði að stilla stærð typpa og brjósta persóna í leiknum. Í nýlegu AMA á Reddit vísuðu starfsmenn hins norska fyrirtækis Funcom til jafnréttis.

Fyrst hafi möguleikinn á stækkanlegum brjóstum litið dagsins ljós og typpastærð hafi verið eðlilegt framhald.

„Við ræddum nekt mjög snemma og ákváðum að vegna söguheimsins væri nekt eitthvað sem við vildum hafa til staðar. Valmöguleikinn var eðlileg þróun þess, sérstaklega þar sem höfðum svipaðan möguleika fyrir brjóst. Jafnrétti og allt það,“ segir á Reddit.

Typpi og brjóst voru þó ekki það eina sem var rætt á Reddit.

Einnig var rætt um þrælahald í leiknum, umsátur, mannfórnir og geldingar.

Conan Exiles er fáanlegur í Early Access á Steam og þegar þetta er skrifað er hann í efsta sæti yfir vinsæla leiki.

Einhverjir hafa tekið upp á því að leika sér aðeins með typpin í Conan, en enginn meira en Chris Livingstone frá PC Gamer eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.