Tónlist

Taylor Swift komin aftur á Spotify

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Taylor Swift lét fjarlægja alla tónlist sína af Spotify í nóvember árið 2014 en er nú snúin aftur.
Taylor Swift lét fjarlægja alla tónlist sína af Spotify í nóvember árið 2014 en er nú snúin aftur.
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur snúið aftur á allar tónlistarveitur, þar á meðal Spotify, eftir tæplega þriggja ára fjarveru. Kynningarteymi Swift tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær en öll tónlist hennar varð opin notendum Spotify á miðnætti í dag, 9. júní. Athygli vekur að þetta útspil söngkonunnar samtvinnast útgáfu nýjustu breiðskífu Katy Perry, sem kemur út í dag, en þær hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Í tilkynningu, sem kynningarteymi Taylor Swift sendi frá sér á Twitter í gær, segir að tónlist söngkonunnar verði gerð aðgengileg á Spotify í tilefni þess að platan 1989 hafi nú selst í 10 milljónum eintaka um allan heim. Með útgáfu tónlistarinnar vill Swift þakka aðdáendum sínum fyrir stuðninginn.

Í nóvember 2014 lét Swift fjarlægja alla tónlist sína af Spotify, einni af vinsælustu tónlistarveitum í heimi. Ári síðar tilkynnti hún að tónlist sín yrði einnig fjarlægð af Apple Music á grundvelli þess að tónlistarmönnum væri ekki borgað fyrir það streymi tónlistar sem fram færi á ókeypis reynslutímabilum notenda.

Nýjasta plata söngkonunnar Katy Perry, Witness, kom einnig út í dag. Söngkonurnar hafa átt í miklum erjum í gegnum tíðina, allt frá því að Swift, í viðtali við tímaritið Rolling Stone árið 2014, sagði Perry hafa reynt að eyðileggja fyrir sér tónleikaferðalag með því að stela frá sér starfsmönnum. Aðdáendur tónlistarkvennanna hafa því leitt að því líkum að tímasetning útgáfu tónlistar Taylor Swift á Spotify sé vandlega tímasett.



Þá ræddi Katy Perry átök sín og Swift við James Corden í bíltúr þeirra nýverið.

„Hún byrjaði þetta og það er kominn tími til þess að hún klári þetta,“ sagði Perry um málið en „Carpool Karaoke“ hennar og Corden má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.