Stjörnuspá Siggu Kling – Ljónið: Hefur verið mikill rússíbani í kringum þig 6. október 2017 09:00
Elsku Ljónið mitt. Þér finnst líf þitt stundum fara úr skorðum. En það er svolítið út af því að þú hefur svo mikið ímyndunarafl og þú átt það til að fyllast hugljómun sem þýðir að ef þú ert spennt fyrir einhverju leggurðu þig 1000% fram og talar stöðugt um það sem heillar þig. Það er gott fyrir þig að hinkra aðeins og slaka á huganum, taka svo ákvörðun um hvað er best fyrir þig. Þú hefur þennan skemmtilega keppnisanda og þolir alls ekki stöðnun svo hefðbundin vinna frá 8-4 er eitur í þínum beinum. Hafðu meiri trú á því að þú getir gert það sem þú vilt. Settu þér samt tímamörk svo þú frestir ekki og frestir því sem þú ætlar að gera. Því þá verðurðu enn þá meira pirrað út í sjálft þig og getur lent í vítahring. Skipulag og frelsi einkenna þig á næstu mánuðum og þú finnur út leiðir til þess að þetta smelli allt saman. Það er líka mikilvægt fyrir þig að leyfa fólki að hjálpa þér að láta draumana rætast því við erum öll ein heild. Ef þú ætlar að gera eitthvað alveg eitt og segja engum hvernig þú ætlar að fara að, þá tekur það þig miklu lengri tíma að ná takmarkinu en ella. Líf þitt er litað mikilli lífsreynslu sem þú átt að setja í lífsreynslubankann til þess að skilja og hjálpa öðrum. Það hefur verið mikill rússíbani í kringum þig síðustu mánuði; sumt hefðirðu viljað að hefði alls ekki gerst en þú munt sjá það á næstu mánuðum að þú átt eftir að geta nýtt þér svo margt úr þessum erfiðu aðstæðum til að blómstra. Það vilja náttúrulega allir taka þátt í lífi þínu þegar vel gengur. En svo heyrir þú jafnvel ekki í neinum þegar torfærurnar birtast. Það sem þú ætlar að læra af því er að vera alls ekki svoleiðis sjálft. Það er eins og þú standir uppi sem og sigurvegari eftir sumarið þótt þú skynjir það ekki eða sjáir það ekki núna. Næstu vikur munu sýna þér hvað í þér býr, því þegar þú þarft að vera sterkt þá er eins og þú fáir tvöfalt afl. Þú munt koma sjálfu þér á óvart og þessi atburðarás mun svo halda áfram næstu sex mánuði. Vertu bjartsýnt og talaðu þig upp, því þú getur skilið við fósturjörðina, maka þinn og hvaðeina en þú þú þarft alltaf að hanga með sjálfu þér. Svo peppaðu þig upp, lestu bækur eða hlustaðu á manneskjur sem eru uppörvandi eins og t.d. Louise L. Hay og ég bendi sérstaklega á diskinn hennar „I Can Do It“. Það eru margir aðrir meistarar sem þú þarft að læra af til að verða hið besta þú og möguleikarnir eru miklu fleiri en þú sérð. Október kemur með kraftinn sem þú þarft í það. Ef þú ert að skoða ástina eða ástamálin þarftu að skoða auðmýkt og lítillæti, en ég get samt svo sannarlega sagt að þú ert ógnarsterkt Ljón og enginn mun stoppa þig!Fræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi, Sema Erla Serdar, baráttukona, Rósa Ingólfsdóttir, sjónvarpskona, Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi. Ég er ógleymanlegur – Unforgettable (Nat King Cole)
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Fleiri fréttir Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Sjá meira