Þolandi heimilisofbeldis fær ekki gjafsókn frá ríkissjóði Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 11. september 2017 06:00 Kristrún segir að málið hafi verið dómtekið en kostnaðinum verði velt yfir á konuna. vísir/pjetur
Tveggja barna móðir sem höfðaði dómsmál til að fá lögskilnað frá eiginmanni sínum sem beitti hana ofbeldi fær ekki gjafsókn frá ríkinu. Maðurinn flúði land og hefur verið ákærður fyrir ítrekuð ofbeldisbrot. „Gjafsóknarnefnd gætir ekki jafnræðis,“ segir Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður konunnar. „Þessi kona var í langvarandi ofbeldissambandi sem henni tókst að koma sér úr. Maðurinn hefur sætt þremur nálgunarbönnum og hefur brotið þau sextán sinnum. Það er evrópsk handtökuskipun á hann í gildi. Konan hefur notið aðstoðar lögreglu vegna málsins en svo mætir hún mótlæti kerfisins þarna,“ segir Kristrún Elsa og ítrekar erfiða félagslega stöðu konunnar. „Hún er í dag einstæð tveggja barna móðir og býr í leiguhúsnæði. Eina leiðin fyrir hana til að fá skilnað var að höfða dómsmál vegna flótta mannsins úr landi. Kostnaðurinn lendir allur á henni,“ segir Kristrún Elsa sem segist áður hafa fengið samþykkta gjafsókn í sambærilegum málum. Bæði í skilnaðar- og í forsjármálum þar sem tekjur eru yfir viðmiði. Við í lögmannastétt höfum oftsinnis gagnrýnt störf nefndarinnar og mat hennar.“ Þegar sótt er um gjafsókn á grundvelli efnahags er almennt miðað við að tekjur nemi ekki hærri fjárhæð en samtals tveimur milljónum króna.Kristrún Elsa Harðardóttir héraðsdómslögmaðurReglur um gjafsókn eru hins vegar sveigjanlegar að þessu leyti því tekið er fram að það megi veita einstaklingi gjafsókn þótt tekjur hans séu yfir viðmiðunarmörkum í vissum tilvikum. Félagsleg staða umsækjenda og aðstæður eru einnig metnar. Til dæmis þegar umsækjandi á ekki íbúðarhúsnæði eins og umrædd kona og leigukostnaður er verulegur. Einnig þegar framfærslukostnaður er hár eins og er í hennar tilfelli með tvö börn á framfæri. Einnig má víkja frá tekjuviðmiði þegar málskostnaður verður fyrirsjáanlega hár miðað við efnahag umsækjanda. Kristrún nefnir að helsta gagnrýni lögmanna felist í því að löggjafinn þurfi að fara yfir og ákveða í hvaða málaflokkum sé tilefni til að veita gjafsókn án tekjutengingar. Ýmsir gætu sagt að lögmenn hafi beina hagsmuni af því að gjafsóknir verði fleiri án tekjutengingar. Kristrún Elsa segir það af og frá. „Það er skelfilegt ef þröngar gjafsóknarreglur og synjanir nefndarinnar valda því að konur losna ekki við ofbeldismanninn úr lífi sínu. Borgarar verða að njóta jafnræðis fyrir lögum. Ég hef áður fengið gjafsókn þegar tekjur eru hærri og skjólstæðingur minn ekki í jafn vondri stöðu. Þá hef ég einnig fengið gjafsókn í forsjármálum. Þetta er ótækt. Mér finnst afar mikilvægt að konur sem hafa ef til vill barist árum saman séu ekki stöðvaðar þarna. Þessi kona stóð sig vel, hún kom sér út úr ofbeldissambandinu, var í góðu sambandi við lögreglu. Þá hefur hún unnið börnum sínum farborða og er refsað fyrir það. Mál hennar hefur verið dómtekið og líklegt að hún fái lögskilnað og fulla forsjá barna sinna. En nú veltir kerfið afleiðingunum, kostnaðinum, á hana.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Settu sprengjur í símboðana Erlent Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Innlent „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Innlent Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum Erlent Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Innlent Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Innlent Læknir grunaður um að nauðga 88 konum Erlent Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Innlent Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Innlent Fleiri fréttir „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Hvorki verið að fylgja fólki né fara með það heim Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Fresta leitinni að Illes Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Nafn stúlkunnar sem lést Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt „Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“ Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Bein útsending: Málþing um sjúklingaöryggi Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi „Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra Segir lögin skipta máli en líka mannúð „Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Brottvísun Yazans mótmælt á meðan ráðherrar funda Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Bjarni segir brottvísunina standa „Þetta er ekki bara pjatt“: Segir eftirlits þörf með gráum markaði með snyrtivörur Sjá meira