Meina keppinaut sínum aðgang að slipp á Húsavík Sveinn Arnarsson skrifar 12. apríl 2017 07:00 Gentle Giants gæti orðið af tekjum við að komast ekki í slipp fyrir vertíðarbyrjun. vísir/pjetur
Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants er í miklum vandræðum með að koma bátum sínum í slipp fyrir komandi vertíð en helsti keppinautur þeirra hefur meinað þeim aðgang að slippnum á Húsavík. Þetta segir Stefán Guðmundsson, forstjóri Gentle Giants. Fyrirtæki í eigu Norðursiglingar á slippinn á Húsavík. Norðursigling og Gentle Giants eru stór fyrirtæki í hvalaskoðun frá Húsavík sem veltir milljörðum á hverju ári. Hvalaskoðunarfyrirtækin tvö hafa á síðustu árum eldað grátt silfur. Hefur Gentle Giants til að mynda kvartað til Neytendastofu varðandi markaðsherferð Norðursiglingar um kolefnishlutlausa hvalaskoðun og hefur Norðursigling kvartað undan bátum Gentle Giants á Skjálfandaflóa og sakað þá um hávaða og brussuskap. „Það er alveg klárt að þeir eru með þessu að hefna sín á okkur fyrir það eitt að hafa kvartað undan framsetningu þeirra á því að vera kolefnishlutlausir. Það er alveg augljóst,“ segir Stefán. Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar, harðneitar þessu að verið sé að hefna fyrir ákveðnar gjörðir. Hins vegar sé það rétt að fyrirtækið hafi gefið það út að ekki væri hægt að lofa þeim inn í slippinn fyrir þessa vertíð. „Við erum ekki í stríði við nokkurn mann enda hvernig ættum við að þurfa þess á meðan fjögur fyrirtæki eiga fullt í fangi með að þjónusta alla þá ferðamenn sem koma hingað í hvalaskoðun.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Loksins mega hommar gefa blóð Innlent Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Innlent Fleiri fréttir Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Bein útsending: Ávarp fráfarandi formanns Vinstri grænna Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Ábendingarnar verði teknar alvarlega Hætta rannsókn á mútumálinu á Selfossi Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Ökumanns hvítrar Teslu enn leitað Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt „Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Rjúpnaveiðitímabilið 25 til 58 dagar eftir svæðum Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum „Laxaastmi“ tekinn alvarlega fyrir vestan Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Stilltu til friðar í slagsmálum fyrir utan skemmtistað Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Sjá meira