Ökumenn á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind fari varlega Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2017 08:00 Það er ekkert sérstakt sumarveður í kortunum, að minnsta kosti ekki á sunnan-og vestanverðu landinu. Vísir/Eyþór
Í dag er spáð allhvassri suðaustanátt og rigningu, einkum um landið sunnan-og vestanvert, að því er segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Víða verður hvassviðri vestan til seinni partinn og því þurfa ökumenn á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind að fara varlega. Sterkar hviður verða við fjöll vestanlands og einna hvassast verður á norðanverðu Snæfellsnesi. Þá mun talsvert magn úrkomu falla á Snæfellsnesi sem og á Reykjanesi.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga: Suðaustan 8-15 með rigningu, en mun hægari og þurrt A-til fram yfir hádegi. Minnkandi úrkoma seint í dag en bætir í vind, einkum V-til, hvassast á N-verðu Snæfellsnesi. Hiti 9 til 16 stig að deginum, hlýjast nyrðra. Suðaustan 8-15 á morgun og víða rigning en lengst af þurrt N-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan.Á miðvikudag: Suðaustan 5-13. Rigning S- og V-lands, en þurrt að kalla norðan heiða fram til kvölds. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á N-landi.Á fimmtudag: Fremur hæg suðlæg átt og skúrir, einkum síðdegis, en austlæg átt 8-13 við norðurströndina og rigning. Hiti 8 til 14 stig.Á föstudag: Norðaustlæg átt 5-13 en hvassari við SA- og A-ströndina. Rigning N- og A-til, en annars bjart með köflum og stöku skúrir. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast S-lands.Á laugardag: Norðaustan 5-10, en hægari seinniapartinn. Dálítil rigning NA-til í fyrstu, en annars víða bjartviðri. Heldur kólnandi á NA-landi.Á sunnudag: Hæg norðlæg eða breytilega átt. Skýjað með köflum og þurrt N-til, en annars bjartviðri að mestu. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira