Góð byrjun á seinni hálfleik lagði grunninn að sigri Gróttu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. febrúar 2017 20:34 Finnur Ingi Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Gróttu. vísir/vilhelm
Grótta vann afar mikilvægan sigur á Akureyri, 25-23, þegar liðin mættust í 19. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Þetta var annar sigur Gróttu í þremur leikjum eftir áramót. Akureyri hefur hins vegar tapað tveimur leikjum í röð og situr á botni deildarinnar. Grótta leiddi nær allan leikinn þótt forystan væri aldrei mikil. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11. Seltirningar byrjuðu seinni hálfleikinn miklu betur og skoruðu fyrstu fjögur mörk hans. Þessi góða byrjun Gróttu á seinni hálfleiknum lagði grunninn að sigrinum. Finnur Ingi Stefánsson kom Gróttu fimm mörkum yfir, 22-17, þegar átta mínútur voru til leiksloka. Þá skiptu Akureyringar um gír og voru ekki langt frá því að næla í stig. Grótta vann þó tveggja marka sigur á endanum, 25-23. Aron Dagur Pálsson var markahæstur í liði Gróttu með sex mörk. Kristján Orri Jóhannsson skoraði sömuleiðis sex mörk fyrir Akureyri.Mörk Gróttu: Aron Dagur Pálsson 6/2, Júlíus Þórir Stefánsson 5, Finnur Ingi Stefánsson 4, Leonharð Þorgeir Harðarson 3, Þráinn Orri Jónsson 2, Elvar Friðriksson 2, Nökkvi Dan Elliðason 2, Lárus Gunnarsson 1.Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 6/3, Mindaugas Dumcius 5, Andri Snær Stefánsson 5, Bergvin Gíslason 4, Arnór Þorsteinsson 2, Arnþór Finnsson 1.
Olís-deild karla Mest lesið „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ Golf Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Álftanes sá til þess að Haukar eru enn án sigurs Körfubolti Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti Áhrifavaldur í ævilangt bann: „Ekkert sem afsakar það sem ég gerði“ Sport Arsenal skoraði óvænt fimm gegn Maríu og félögum Enski boltinn Leik lokið: Höttur - Valur 83-70 | Heimamenn á beinu brautina Körfubolti „Sóknarlega vorum við ömurlegir og ég þarf að taka það á mig“ Sport „Við ræðum það ekki við fjölmiðla“ Fótbolti Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Handbolti Fleiri fréttir Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Þrjár breytingar á landsliðshópnum | Aron ekki með Mæta Svíum í tveimur leikjum fyrir HM Guðmundur Bragi öruggur á vítalínunni Ómar með fimm fyrir flugið til Íslands Guðjón Valur með sína menn í fjórða sæti „Svona högg gerir okkur sterkari“ „Menn hafa sýnt mikla fagmennsku í því hvernig þeir hugsa um sig“ Melsungen endurheimti toppsætið án Arnars Sjá meira
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti
Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“ Körfubolti