Viðskipti innlent

Ásta Sigríður Fjeldsted nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ásta Sigríður Fjeldsted.
Ásta Sigríður Fjeldsted.
Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðsktiptaráðs Íslands að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðinu. Ásta hefur starfað fyrir ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrifstofum þess í Kaupmannahöfn og Tókýó.

Þar hefur hún einkum sinnt verkefnum í stefnumótun og rekstrarumbótum fyrirtækja en jafnframt haft leiðandi hlutverk í skýrslugerð um úrbætur í efnahagsmálum Japans.

Áður starfaði Ásta hjá IBM í Kaupmannahöfn og stoðtækjaframleiðandanum Össur hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi en hún er vélaverkfræðingur með M.Sc. frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Ásta mun formlega taka til starfa þann 1. júní næstkomandi af Frosta Ólafssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×