Tugmilljóna trjágrisjun hófst í Öskjuhlíð í gær Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 28. janúar 2017 07:00 Starfsmenn Hreinna garða tóku til óspilltra málanna í gær. vísir/anton brink
Byrjað var að grisja skóginn í Öskjuhlíð í gær en fyrirtækið Hreinir garðar sér um verkið. Alls verða felld 130 stór grenitré sem ná upp fyrir öryggisviðmið í aðflugslínu að Reykjavíkurflugvelli. Fimm fyrirtækjum var boðið að gera tilboð og buðu tvö í verkið. Hreinir garðar buðu um 18,5 milljónir en fyrirtækið 7913 bauð um 20,2 milljónir. Vegna þess að verkið er flókið og á viðkvæmu svæði ákvað Isavia, sem er framkvæmdaraðili ásamt Reykjavíkurborg, í samráði við sérfræðinga sem ráðnir voru sem ráðgjafar við verkið að tilboðsgögn yrðu aðeins send fyrirtækjum með þekkingu á grisjun og trjáfellingum og sem eiga tækjabúnað fyrir verkefnið. Reykjavíkurborg hefur eftirlit með verkinu. Áætluð verklok eru um miðjan mars. Þegar málið kom upphaflega til umræðu 2011 var rætt um að hugsanlega yrðu trén ekki felld heldur sagað ofan af þeim en slíkt verður ekki gert og trén því söguð niður við jörð.Þröstur Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur.Viðurinn sem fellur til verður nýttur í hof Ásatrúarfélagsins og í útivistarsvæðið í Öskjuhlíð. Kurlið fer í stíga eða á gróðursvæði. Þröstur Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, segir að félagið muni una dómi Hæstaréttar og ekki aðhafast meir í málinu. Rödd félagsins sé búin að heyrast og úr því sem komið er sé ekki hægt að breyta neinu. „Þetta er sorglegt og leiðinlegt og svæðið verður ekki jafn fallegt á eftir. Við höfum gert allt sem í okkar valdi stóð en dómur frá Hæstarétti stendur,“ segir hann. Gert er ráð fyrir því að ný tré verði gróðursett þar sem mörg há grenitré sem þarf að fella standa saman í lundi. Öllu raski verði haldið í lágmarki og umferð tækja verður takmörkuð eins og hægt er. Gæta á sérstaklega að öryggi gesta bæði á meðan á verkinu stendur og eftir vinnutíma. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Sjá meira