Enski boltinn

Öruggt hjá Manchester City á Selhurst Park

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sane skoraði eitt af mörkum Manchester City í dag.
Sane skoraði eitt af mörkum Manchester City í dag. vísir/getty
Manchester City vann öruggan sigur á Crystal Palace á Selhurst Park í 32-liða úrslitum enska bikarsins en leiknum lauk með 3-0 sigri Manchester City og sáu Leroy Sane, Raheem Sterling og Yaya Toure um markaskorunina.

Sterling kom Manchester City yfir á 43. mínútu og Sane bætti við marki á 71. mínútu en Toure gulltryggði sigurinn með marki í uppbótartíma.

Gabriel Jesus sem gekk til liðs við Manchester City í janúar lék allan leikinn í fremstu víglínu en honum tókst ekki að skora fyrsta mark sitt fyrir félagið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×