Real Madrid sagt ætla að gera Tottenham risa tilboð í Dele Alli Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. janúar 2017 08:30 Dele Alli skorar mikið af mörkum. vísir/getty
Spænska stórliðið Real Madrid er sagt ætla að gera Tottenham risa tilboð í enska miðjumanninn Dele Alli samkvæmt frétt enska blaðsins The Mirror í dag. Real er sagt hafa fylgst með Dele í þó nokkurn tíma en spænska félagið hefur áður keypt stórstjörnur frá Tottenham á borð við Luka Modric og Gareth Bale sem báðir urðu Evrópumeistarar með Real Madrid síðasta vor. Ekki kemur til greina að Dele Alli fari til Real í janúar þar sem spænska félagið má ekki kaupa leikmenn fyrr en næsta sumar en það er sagt vera að gera tilbúið hraustlegt tilboð fyrir næsta sumar. Nái Real að kaupa enska miðjumanninn frá Tottenham er hann sagður fá væna launahækkun en Dele Alli er nýbúinn að skrifa undir langtíma samning við Spurs sem skilar honum 60.000 pundum í vikulaun. Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur sagt opinberlega að leikmaðurinn sé ekki minna en 50 milljóna punda virði þannig Dele Alli verður ekki ódýr ætli Real að fjárfesta í honum næsta sumar. Þessi tvítugi miðjumaður mætti til leiks með látum í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og skoraði þá tíu mörk í 33 leikjum er Spurs tryggði sér sæti í Meistaradeildinni. Hann er búinn að skora átta mörk í 18 leikjum nú þegar en hann er uppalinn hjá MK Dons.
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ Körfubolti „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Handbolti GAZið: „Þegar svona mikil velgengni er, þá kemur smá doði í mannskapinn“ Körfubolti Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun Handbolti Á skotskónum í framrúðubikarnum Enski boltinn Beeman með sýningu í fyrsta sigri nýliðanna Körfubolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagur af bestu gerð áður en umferðin öll verður gerð upp Sport Fleiri fréttir Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Sjá meira