
Væntingar Kristjáns til Íslands ekki miklar: Vill sjá ungu mennina fá mínútur

Strákarnir okkar fara á fullt í undirbúningi fyrir HM í dag þegar þeir hefja leik á Bygma-æfingamótinu í Danmörku en mótherjar dagsins eru Egyptar sem Ísland hefur ekki tapað fyrir í níu ár.
„Ég er að vona að við endum mótið sem eitt af þeim átta efstu. Að krefja það um eitthvað meira er ósanngjarnt,“ segir Kristján í Morgunblaðinu í dag en okkar menn eru í riðli með Spáni, Slóveníu, Makedóníu, Túnis og Angóla. Fjögur efstu liðin fara í 16 liða úrslitin.
Aron Pálmarsson, besti handboltamaður Íslands, er meiddur og verður ekki með í Danmörku en vonast er til að hann geti spilað á HM. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi hans.
„Það mun auðvitað breyta heilmiklu ef Aron Pálmarsson getur ekki verið með. Hann er sá leikmaður sem á að gera gæfumuninn enda okkar besti handboltamaður. Maður hefur tvenns konar sýn á liðið, með og án Arons,“ segir Kristján sem vill að yngri leikmenn, framtíð íslenska liðsins, fái nú tækifæri og spili alvöru mínútur í Frakklandi.
„Ég vil sjá Janus Daða, Ómar Inga og Arnar Frey fá að spila sína rullu á þessu móti. Ég tel að liðið verði ekki verra þótt þeir fái sína kafla. Janus og Ómar eru flinkir leikmenn og Arnar hefur staðið sig mjög vel,“ segir Kristján.
„Þetta eru strákar sem eru komnir með ágæta reynslu þótt það sé mikill munur á því að spila á stóru heimsmeistaramóti og í deildinni hér heima eða í unglingalandsliðinu. Ég myndi vilja sjá þá fá 10-20 mínútna spiltíma í hverjum leik,“ segir Kristján Arason.
Tengdar fréttir

HBStatz: Rúnar með betri skotnýtingu í tapleikjum og tapaði næstum aldrei boltanum
Tölfræðisíðan HBStatz heldur áfram að telja niður í HM með því að fara yfir frammistöðu strákanna okkar á árinu 2016.

Strákarnir hafa ekki tapað fyrir Egyptum í níu ár
Íslenska handboltalandsliðið hefur í dag keppni á Bygma Cup æfingamótinu í Danmörku. Fyrsti leikur liðsins er á móti Egyptalandi klukkan 17.00 að íslenskum tíma.

Guðjón Valur langmarkahæsti leikmaðurinn á HM
Guðjón Valur Sigurðsson er þriðji reynslumesti leikmaðurinn sem spilar á HM en sá langmarkahæsti.

Aron fer ekki með landsliðinu til Danmerkur | Fjórir dottnir út
Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur valið þá átján leikmenn sem fara með íslenska landsliðinu á æfingamótið í Danmörku sem hefst á fimmtudaginn en lýkur á sunnudaginn.

Mikilvægi Arons sést vel í þessari tölfræði HBStatz
Aron Pálmarsson er besti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta og því gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska liðið að hann verði leikfær á HM í Frakklandi sem hefst í næstu viku.

Björgvin Páll: Má vel vera að við séum að gleymast
Strákarnir okkar hefja leik á HM í handbolta eftir átta daga þegar þeir mæta Spáni.