Starfsmaður Google rekinn fyrir að stuðla að staðalmyndum kynjanna Kjartan Kjartansson skrifar 8. ágúst 2017 11:47 Staðalmyndir kynjanna eru ekki liðnar hjá Google. Vísir/AFP
Tæknirisinn Google hefur rekið starfsmann sem skrifaði umdeilt minnisblað þar sem meðal annars var fullyrt að líffræðilegar orsakir valdi því að færri konur starfi hjá fyrirtækinu. Karlkyns forritari hjá Google sendi innanhússminnisblað þar sem hann færði rök fyrir því að færri konur væri í forsvari hjá tæknifyrirtækjum vegna líffræðilegs munar á þeim og körlum, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. „Við þurfum að hætta að ganga út frá því að kynjamunur stafi af karlrembu,“ skrifaði hann á innra spjallborði Google. Pistill hans var síðar birtur á tæknivefsíðunni Gizmodo.Ekki í lagi að segja hluta starfsmanna síður hæfan líffræðilega Sundar Pichai, forstjóri Google, segir að minnisblaðið hafi brotið gegn siðareglum fyrirtækisins. Forritarinn hafi verið látinn taka poka sinn. Í tölvupósti til starfsmanna sagði Pichai að minnisblaðið hefði farið yfir strikið vegna þess að það „ýtti undir skaðlegar staðalmyndir kynjanna á vinnustaðnum“. Þrátt fyrir það lagði Pichai áherslu á málfrelsi starfsmanna sinna og sagði margt af því sem kom fram í minnisblaðinu eitthvað sem sem vert væri að ræða hvort sem að mikill meirihluti starfsmanna Google sé sammála því eða ekki. „Að gefa í skyn að hluti samstarfsmanna okkar hafi eiginleika sem gerir þá síður líffræðilega hæfa til að sinna sinni vinnu er móðgandi og ekki í lagi,“ skrifaði forstjórinn.
Google Tækni Mest lesið Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Innlent Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Sjá meira