Vara sína menn í Nígeríu við litla Íslandi á HM: „Við vitum ekkert um þá“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. desember 2017 08:00 Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska landsliðsins fagnar hér á Laugardalsvelli þegar Ísland tryggði sér farmiðann til Rússlands. vísir/ernir
John Fashanu, fyrrverandi framherji Wimbledon í ensku úrvalsdeildinni, varar Nígeríumenn við því að mæta Íslandi í riðlakeppni HM 2018 en þjóðirnar drógust saman í riðil í síðust viku. Fashanu er Englendingur en faðir hans er frá Nígeríu og hefur hann því alltaf bundist nígeríska landsliðinu tryggðarböndum. Hann ræðir riðilinn á vefnum ThisDayLive þar sem hann segir strákana okkar vera einskonar huldulið sem enginn vill mæta. „Ég er ánægður með að vera í sama riðli og Argentína því þegar að við spilum á móti Argentínumönnum spilum við alltaf mjög vel. Ég vildi samt ekki vera í sama riðli og Ísland,“ segir Fashanu. „Ísland er hulduliðið sem enginn veit neitt um. Þetta er lið sem hefur engu að tapa og allt að vinna. Þarna gæti Nígería farið illa að ráði sínu,“ segir John Fashanu. Fashanu, sem er 55 ára gamall í dag, spilaði tæplega 400 leiki í tveimur efstu deildum enska boltans og skoraði 150 mörk en hann spilaði tvo landsleiki fyrir England.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Fleiri fréttir Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Sjá meira