Hollendingar unnu alla sex leiki sína á EM með markatölunni 13-3 og eru vel að titlinum komnir.
Þetta er aðeins þriðja Evrópumót hollenska liðsins. Holland komst í undanúrslit á EM 2009 en féll út í riðlakeppninni fjórum árum síðar. Framfarirnar eru því miklar.
Fyrri hálfleikurinn í leiknum í dag var gríðarlega fjörugur og staðan að honum loknum var jöfn, 2-2.

Á 10. mínútu fór Shanice van de Sanden framhjá Cecilie Sandvej og sendi fyrir á Vivianne Miedema sem skoraði.
Lieke Martens kom Hollendingum yfir á 28. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig.
Forystan entist aðeins í fimm mínútur því Pernille Harder, fyrirliði Dana, jafnaði metin á 33. mínútu með laglegu marki.

Sherida Spitse kom Hollandi yfir á 51. mínútu þegar hún skoraði beint úr aukaspyrnu. Stina Lykke Petersen í marki Danmerkur var illa staðsett og réði ekki við skotið.
Þegar ein mínúta var til leiksloka kláraði Miedema leikinn með sínu öðru marki. Þetta var fjórða mark Miedema á EM og 45 mark hennar í aðeins 57 landsleikjum.
Fleiri urðu mörkin ekki og Hollendingar fögnuðu vel og innilega þegar Staubli flautaði til leiksloka.