Hálka og hálkublettir víða um land og aðstæður geta breyst með litlum fyrirvara Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. desember 2017 09:01 Veðurstofan hvetur fólk til þess að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um færð. Skjáskot/Veðurstofa
Það er hálka eða hálkublettir víða á suður og suðvesturlandi í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Það er einnig hálka eða hálkublettir á flestum leiðum á Vesturlandi. Hvasst er á Snæfellsnesi og ófært á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og einhver éljagangur. Ófært er norður í Árneshrepp sem og yfir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar. Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi og víða éljagangur. Þæfingur er á Siglufjarðarvegi. Hálka eða snjóþekja eru á Austurlandi og sums staðar töluverður snjór en verið er að hreinsa. Hálka og hálkublettir eru á Suðausturlandi. Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara einnig vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag er vaxandi norðlæg átt og él á norðan- og austanverðu landinu, en annars bjartviðri að mestu. Hvassast verður suðaustan til. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður snjókoma eða él á norður- og austurlandi en annars úrkomulaust að kalla. Norðlæg átt verður ríkjandi næstu daga samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Ofankoma, einkum bundin við norðan- og austanvert landið, en lengst af bjart og þurrt suðvestantil. Fremur kalt í veðri. Við svona aðstæður getur færð á vegum spillst með litlum fyrirvara og er fólk hvatt til að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um færð.
Samgöngur Veður Mest lesið Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Innlent „Þetta er bara rétt að byrja“ Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Erlent Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Innlent Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum Innlent Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Innlent Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Innlent Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Innlent Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Innlent Settu sprengjur í símboðana Erlent Fleiri fréttir „Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“ Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Segja ummæli Quang Le tilhæfulaus og ósönn Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Sjúklingurinn þurfi að vera með í allri ákvörðunartöku Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Lögmaður Yazans sakar yfirvöld um lögbrot „Þetta er bara rétt að byrja“ Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum „Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“ „Við erum mjög uggandi yfir stöðunni“ Talinn hafa nauðgað konu og tekið það upp Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn þríklofinn um samgöngusáttmála Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Sjá meira