Sunna „Tsunami“ Davíðsdóttir æfir af krafti þessa dagana enda á hún bardaga í Kansas City í lok mánaðarins.
Það verður annar atvinnumannabardagi Sunnu en hún vann sannfærandi sigur í sínum fyrsta bardaga.
Í gær kom til landsins skoska bardagastjarnan Joanne Calderwood og hún mun æfa með Sunnu í tíu daga. Þetta er í fjórða sinn sem Calderwood kemur til Íslands að æfa en hún og Sunna eru góðar vinkonur.
Calderwood er þrítugur Skoti sem var í Invicta á sínum tíma en þar er Sunna að berjast núna. Hún samdi við UFC í desember árið 2013 og er í sjöunda sæti á styrkleikalista UFC í strávigtinni.
Það mun því klárlega hjálpa Sunnu mikið að æfa með JoJo, eins og hún er kölluð, næstu daga og klárt að okkar kona mætir í toppformi til Bandaríkjanna.
Sunna æfir með UFC-stjörnu

Tengdar fréttir

Sunna berst næst í lok mars
Bardagakonan Sunna "Tsunami“ Davíðsdóttir er búin að fá sinn næsta bardaga á atvinnumannaferlinum.

Sunna: Ég fann að þjóðin stóð á bak við mig
Það er farið að styttast í næsta bardaga Sunnu Rannveigar Davíðsdóttir en hann fer fram í Kansas City seint í þessum mánuði.