Enski boltinn

Fulham nálgast umspilssæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar var ekki í leikmannahópi Fulham.
Ragnar var ekki í leikmannahópi Fulham. vísir/getty
Fulham vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Bristol City í kvöld. Lokatölur 0-2, Fulham í vil.

Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham sem er í 7. sæti ensku B-deildarinnar. Fulham er með 52 stig, sex stigum frá 6. sætinu og á leik til góða.

Lucas Piazon og Tom Cairney skoruðu mörk Fulham í leiknum í kvöld.

Hörður Björgvin Magnússon sat allan tímann á varamannabekknum hjá Bristol sem er í 21. sæti deildarinnar með 32 stig, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×