Bíó og sjónvarp

Tilkynnt í næstu viku hvort Undir trénu kemst í gegn Óskarsniðurskurð

Birgir Olgeirsson skrifar
Edda Björgvinsdótitr leikkona við hlið styttu af Marilyn Monroe.
Edda Björgvinsdótitr leikkona við hlið styttu af Marilyn Monroe.
Kvikmyndin Undir trénu var valin mynd ársins af lesendum kvikmyndatímaritsins Cinema Scandinavia um liðna helgi. Í vikunni fóru svo fram síðustu sýningar á Undir trénu fyrir meðlimi bandarísku kvikmyndaakademíunnar en myndin keppir fyrir hönd Íslands í forvali til Óskarsverðlaunanna. Edda Björgvinsdóttir leikkona, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri og Grímar Jónsson framleiðandi voru viðstödd sýningarnar.

Edda Björgvinsdóttir leikkona, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri og Grímar Jónsson framleiðandi voru viðstödd sýningarnar.
„Þetta er auðvitað bara gamall draumur að rætast, loksins komin til Hollywood þar sem maður fær að vera stjarna í nokkra daga. Það fór auðvitað svolítið um mann að rekast á Morgan Freeman í morgunmatnum, afskaplega viðkunnanlegur maður, ég er að hugsa um að giftast honum. Annars hafa strákarnir verið voða duglegir að þeytast út um allan bæ á fundum og þeir segja mér að það séu komnar mjög spennandi viðræður í gang um sölu á endurgerðarréttinum til virts framleiðanda hérna í bænum þannig að það verður spennandi að sjá hvað gerist á næstunni,“ segir Edda Björgvinsdóttir.

Þann 15. desember næstkomandi kemur í ljós hvaða  níu myndir komast áfram í forvalinu. Myndin er enn í sýningum í íslenskum kvkmyndahúsum og því gefst ennþá tækifæri til að sjá hana á stóra tjaldinu.  


Tengdar fréttir

Undir trénu seld um allan heim

Undir trénu hlaut nýverið sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Denver en þar var hún tilnefnd til Krzysztof Kieslowski verðlaunanna. Undir trénu hefur tekið þátt í þremur keppnum í USA og hlotið verðlaun á þeim öllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.