Sendu MDE upplýsingar um fjármálaumsvif dómara Haraldur Guðmundsson skrifar 9. janúar 2017 16:38 Ólafur Ólafsson, eigandi Samskipa, var dæmdur til fangelsisvistar í Al-Thani málinu svokallaða. Vísir/Vilhelm
Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) fékk á föstudag sendar upplýsingar um fjármálaumsvif dómara við Hæstarétt Íslands á árunum fyrir fall íslenska bankakerfisins árið 2008. Þeir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, þrír fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi, og Ólafur Ólafsson, fyrrverandi hluthafi í bankanum, sendu upplýsingarnar en þær eru hluti af málsskjölum sem þeir sendu MDE vegna umfjöllunar dómstólsins um Al-Thani málið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjórmenningunum sem almanntengslafyrirtækið KOM sendi fjölmiðlum fyrr í dag. Telja þeir líkt og margoft hefur komið fram að brotið hafi verið á réttindum þeirra við rannsókn málsins og síðar meðferð þess fyrir dómstólum. „Kæra Ólafs og fyrrverandi stjórnenda Kaupþings til MDE snýr meðal annars að vanhæfi dómara sem dæmdu málið í Hæstarétti í febrúar 2015. Í bréfinu til Mannréttindadómstólsins er bent á nýjar upplýsingar um hagsmunatengsl dómara sem komu fram í umfjöllun íslenskra fjölmiðla í desember síðastliðnum. Í kærunni kemur fram að Hæstiréttur Íslands hafi sýnt dómgreindarleysi við að meta hugsanlega hagsmunaárekstra í dómsmálum á hendur fyrrverandi stjórnendum þriggja stærstu viðskiptabankanna; Kaupþings, Glitnis og Landsbankans. Í öllum málum hefði verið tekist á um meinta markaðsmisnotkun og umboðssvik sakborninga og þau því tengd innbyrðis,“ segir í tilkynningunni. Fjórmenningarnir voru allir sakfelldir í Hæstarétti í febrúar 2015 fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun. Hreiðar Már fékk þyngsta dóminn eða fimm og hálft ár í fangelsi, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár en Sigurður fjögur ár. „Nýleg fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi hefur leitt í ljós að sumir dómarar sem sátu í Hæstarétti í þessum málum höfðu persónulegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta, í sumum tilvikum umtalsverðra hagsmuna, vegna bankanna í aðdraganda falls þeirra árið 2008,“ segir í kærunni til Mannréttindadómstólsins, samkvæmt fréttatilkynningunni.
Mest lesið Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Samstarf Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Samstarf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira