Bíó og sjónvarp

La La Land fékk sjö verðlaun og sló met

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Hópurinn á bakvið La La Land.
Hópurinn á bakvið La La Land. vísir/epa
Söngleikjamyndin La La Land kom sá og sigraði á Golden Globes hátíðinni sem fram fór í nótt. Hún hlaut alls sjö verðlaun en engin önnur kvikmynd hefur unnið til eins margra verðlauna á hátíðinni.

Kvikmyndin stóð uppi sem sigurvegari í öllum þeim flokkum sem hún var tilnefnd í. Hún var valin besta söngleikja- eða gamanmyndin og fékk verðlaun fyrir bestu leikstjórn, handrit, tónlist og lag í kvikmynd. Þá unnu aðalleikararnir Emma Stone og Ryan Gosling í flokki leikara.

Tónskáldið Jóhann Jóhannsson var tilnefndur fyrir bestu tónlistina, í kvikmyndinni Arrival, en laut líkt og aðrir lægra haldi fyrir La La Land, en það var Justin Hurwitz sem stóð uppi sem sigurvegari í þeim flokki.

Moonlight var valin besta dramamyndin og besti aðalleikarinn í þeim flokki var Casey Affleck fyrir hlutverk sitt í myndinni Manchester By The Sea. Franska leikkonan Isabelle Huppert var valin besta aðalleikkonan í þeim sama flokki fyrir leik sinn í Elle, sem var valin besta erlenda kvikmyndin.

The Crown var valin besta dramasjónvarpsþáttaröðin og Atlanta var valin besti gamanþátturinn. Meryl Streep fékk heiðursverðlaun á hátíðinni en í ræðu sinni gagnrýndi hún nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, líkt og sjá má á myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Golden Globes verðlaunahátíðin er jafnan talin mælistika á velgengni kvikmynda á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer síðar á árinu.

 

Vísir/Graphic news





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.