Kaupþing greiðir 5 milljarða til ríkisins Hörður Ægisson skrifar 7. janúar 2017 11:00 Skuldabréfið er til þriggja ára sem er í samræmi við þann tímaramma sem Kaupþing hefur til að selja hlut sinn í Arion banka.
Kaupþing eignarhaldsfélag þarf að inna af hendi vaxtagreiðslu upp á rúmlega 4,6 milljarða króna til íslenska ríkisins síðar í þessum mánuði. Greiðslan kemur til vegna 84 milljarða króna veðskuldabréfs sem Kaupþing gaf út til stjórnvalda í ársbyrjun 2016 sem hluta af stöðugleikaframlagi gamla bankans. Skuldabréfið ber 5,5% vexti á ári og er Kaupþingi aðeins heimilt greiða inn á bréfið með fjármunum sem falla til við sölu á 87% hlut félagsins í Arion banka. Fram til þessa hefur Kaupþing enn ekki selt neitt af hlut sínum í bankanum og þarf því að greiða vexti af öllum höfuðstól skuldabréfsins. Þá getur Kaupþing sömuleiðis ekki greitt sér út arð úr Arion banka og nýtt þá fjármuni til að borga inn á bréfið. Þannig kemur fram í skýringarriti sem lagt var fyrir kröfuhafafund Kaupþings 13. nóvember 2015, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, að allar arðgreiðslur Arion banka til Kaupþings fram að sölu á bankanum skuli framseldar, á grundvelli svonefnds fjársópsákvæðis, án endurgjalds til íslenskra stjórnvalda. Það ákvæði skýrir af hverju enginn arður var greiddur út til hluthafa Arion banka á þessu ári þrátt fyrir að bankinn hafi skilað sögulegum 50 milljarða hagnaði á árinu 2015. Stjórnendur Kaupþings vinna nú að því losa um hlut félagsins í Arion banka með því að halda almennt hlutafjárútboð og skrá bankann í bæði Kauphöll Íslands og í Kauphöllinni í Svíþjóð á fyrri árshelmingi þessa árs. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hversu stór hlutur verður seldur í útboðinu. Miðað við bókfært eigið fé Arion banka í dag er 87% hlutur Kaupþings metinn á um 180 milljarða króna. Vegna afkomuskiptasamnings sem stjórnvöld gerðu við kröfuhafa slitabúsins þá mun hins vegar mikill meirihluti söluandvirðis Arion banka falla í skaut ríkisins. Samkvæmt lista yfir hluthafa Kaupþings í desember 2016, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, eru stærstu eigendur félagsins bandarísku vogunarsjóðirnir Taconic Capital og Och-Ziff Capital Management. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Samstarf Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Samstarf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira