Lögreglan í Tyrklandi leitar enn að manni sem skaut 39 manns til bana og særði tæplega sjötíu á skemmtistað í Istanbúl á nýársnótt. Yfirvöld í Kirgistan hafa yfirheyrt Iakhe Mashrapov, 28 ára gamlan Kirgisa, sem í dag var talinn bera ábyrgð á árásinni og segja hann ekki tengjast verknaðinum. Þetta kemur fram í frétt BBC.
Tyrkneskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að leitað væri að Mashrapov eftir að mynd af vegabréfi hans var birt á samfélagsmiðlum.
Vegabréfsmynd Mashrapovs þótti svipa mjög til mannsins sem lögregla hefur lýst eftir, en búið er að birta ljósmyndir af árásarmanninnum auk myndbands sem hann tók af sjálfum sér nokkru fyrir árásina.
Átta manns voru handteknir í tengslum við árásina á mánudag, en árásarmaðurinn sjálfur var ekki meðal þeirra. Mannsins er því enn leitað.
Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum er maðurinn sem leitað er að frá mið-Asíu og hafði hann leigt íbúð í tyrknesku borginni Konya ásamt konu sem talin er vera eiginkona hans og tveimur börnum sem nú eru í haldi.
