Viðskipti innlent

ÍSAVIA fær samband við 75 gervihnetti með nýjum samningi

Heimir Már Pétursson skrifar
ISAVIA hefur undirritað samning við flugþjónustufyrirtækið Aireon sem gerir ISAVIA kleift, með aðstoð 75 gervihnatta, að fá nákvæmari upplýsingar um staðsetningu flugvéla í nyrðri hluta íslenska flugstjórnarsvæðisins. Þannig er hægt að bæta þjónustu við flugfélög í pólarflugi og flugið verður hagkvæmara og mengar minna.

SpaceX geimferðarfyrirtækið skaut um helgina upp tíunda gervihnettinum sem hefur að geima búnað frá Aireon flugþjónustufyrirtækinu sem ISAVIA hefur nú gert samning um aðgang að. Innan árs verða gervihnettirnir orðnir 75 og þar með fær ISAVIA upplýsingar úr sendum flugvéla í norður hluta flugstjórnarsvæðis Íslands sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar.

Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ÍSAVÍA segir að í dag notist fyrirtækið m.a. við 22 móttakara á jörðu niðri í Færeyjum, á Íslandi og á Grænlandi, en fyrir flug í norðurhlutanum sé stuðst við upplýsingar frá flugvélunum sjálfum.

„Við auðvitað höfum ágætis upplýsingar í dag en allar aðskilnaðarreglur byggja á því hve ört við fáum upplýsingar og hversu góðar upplýsingarnar eru og hve gott samband við flugvélarnar er,“ segir Ásgeir.

En með gögnunum frá Aireon fáist ítarlegri upplýsingar um stöðu, hraða og hæð flugvéla í norðursvæðinu en nú, á innan við tveimur sekúndum. Þess vegna verði hægt að minnka bil á milli flugvéla á þessu svæði og þétta umferðina.

„Og getum þess vegna betur uppfyllt þær óskir sem okkar viðskiptavinir, flugfélögin, eru að fara fram á með flugferla og annað slíkt. Sem mun leiða til þess að það verður hagkvæmari rekstur hjá þeim. Minni notkun á eldsneyti og þá auðvitað minni útblástur líka,“ segir Ásgeir.

Í fyrra fóru 165 þúsund flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið og dvöldu á því í meðaltali í eina og hálfa klukkustund. Mikil fjölgun hefur verið í flugi yfir pólinn og því mun hin nýja tækni nýtast mjög vel. ISAVIA stýrir flugumferð á íslenska svæðinu sem er langt um stærra en þarf til að þjóna Íslandi einu í umboði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.

Það er ekki sjálfgefið að þjónustan fari fram hér á landi og því mikilvægt að Ísavia sé ávallt í fremstu röð í tækni og þjónustu og taki þátt í innleiðingu nýrrar tækni fyrir stjórnun flugumferðar.

„Þeir hafa sérstaklega tekið fram að þeir leggja mikla vigt á það að við séum virkir í þeirri vinnu með þeim að fara í gegnum þær alþjóðlegu nefndir sem þarf að gera til að fá samþykki á notkuninni og allt það. Vera með frá upphafi? Já, það er einmitt það. Við erum svokallaðir "launch customer" ásamt nokkrum öðrum,“ segir Ásgeir Pálsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×