Carnegie og Deutsche Bank ráðgjafar við útboð Arion banka Hörður Ægisson skrifar 19. janúar 2017 07:00 Miðað bókfært eigið fé Arion banka er 87 prósenta hlutur Kaupþings metinn á um 180 milljarða.
Kaupþing hefur gengið frá samkomulagi við sænska fjárfestingabankann Carnegie og þýska stórbankann Deutche Bank um að bankarnir verði ráðgjafar í tengslum við sölu á hlut í Arion banka í gegnum almennt hlutafjárútboð. Þannig mun Carnegie vera á meðal leiðandi umsjónaraðila með útboðinu en Deutche Bank verður hins vegar í hlutverki söluráðgjafa. Frá þessu var greint í frétt Reuters í gær en Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, hafði áður upplýst þann 11. janúar síðastliðinn að Kaupþing myndi innan skamms ganga frá ráðningu á ráðgjöfum vegna útboðsins og að Carnegie og Deutche Bank yrðu líklegast fyrir valinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þá er einnig gengið út frá því að samið verði við íslenskt fjármálafyrirtæki um að vera söluráðgjafi við útboðið. Stjórnendur Kaupþings, en eignarhaldsfélagið á 87 prósenta hlut í Arion banka, stefna að því að því að útboðið fari fram á fyrri árshelmingi, mögulega strax í apríl næstkomandi, og í kjölfarið verði bankinn skráður á markað í Kauphöll Íslands og í Kauphöllinni í Svíþjóð. Auk Carnegie eru bandarísku fjárfestingabankarnir Morgan Stanley og Citi, sem hafa verið ráðgjafar Kaupþings og Arion banka við söluferlið á undanförnum mánuðum og misserum, jafnframt leiðandi umsjónaraðilar með hlutafjárútboðinu. Greint var frá því í Markaðnum í síðustu viku að nánast útilokað væri að hópur íslenskra lífeyrissjóða myndi kaupa tuga prósenta eignarhlut í Arion banka í gegnum lokað útboð. Viðræður milli Kaupþings og fulltrúa sjóðanna þess efnis hefðu runnið út í sandinn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira