Loftbrú til Liverpool Benedikt Bóas skrifar 17. janúar 2017 06:00 Einstök stemning er á Anfield og eru fjölmargir íslenskir stuðningsmenn að fara um helgina að sjá leik gegn Swansea. vísir/getty
Ferð Úrvals Útsýnar og vefsíðunnar Kop.is til Liverpool um helgina seldist upp á rúmum sólarhring. Þeir aukamiðar sem fóru í sölu skömmu síðar seldust upp á nokkrum klukkustundum. Ferðaskrifstofurnar Vita ferðir, Gaman ferðir og TransAtlantic buðu einnig upp á skipulagða ferð á leikinn og er uppselt hjá þeim öllum. Það má því búast við nokkur hundruð Íslendingum á heimavelli Liverpool, Anfield, þegar Gylfi Sigurðsson og lið hans, Swansea, koma í heimsókn um helgina.Kristján Atli RagnarssonFerðin var ódýrust hjá Gaman ferðum þar sem hún kostaði 109 þúsund en dýrust hjá Úrvali Útsýn á 135 þúsund. Misjafnt er hvað er innifalið í miðaverðinu. Í kop.is ferð Úrvals Útsýnar er flogið til Birmingham og ekið með rútu til Liverpool. Farið er utan á fimmtudegi og lent á Íslandi á mánudag. TransAtlantic flýgur til Manchester eins og Vita ferðir en aðeins fyrrnefnda félagið býður upp á ferðalag til og frá flugvelli. Hjá Gaman ferðum er flogið til London og þurfa ferðalangar að koma sér sjálfir til Liverpool. Kristján Atli Ragnarsson, einn af ritstjórum vefsíðunnar kop.is, segir að eftirspurnin eftir miðum á Anfield sé mjög mikil og auðveldlega hefði verið hægt að ferja fleiri Íslendinga til borgarinnar um helgina. „Það verður haugur af Íslendingum þarna. Við stækkuðum ferðina okkar og það seldist upp á nokkrum klukkutímum.“ Alls fékk vefsíðan 70 miða á leikinn og segir Kristján að áhuginn á leikjum Liverpool sé mjög mikill, ekki aðeins frá íslenskum stuðningsmönnum heldur einnig frá stuðningsmönnum annars staðar í heiminum. „Við erum búnir að skipuleggja svona ferðir í fjögur ár og ætluðum að fara tvær ferðir, eina fyrir jól og eina eftir jól. En aðsóknin er svo mikil og uppselt í flestar aðrar ferðir sem eru í boði að það er kominn töluverður þrýstingur á að fara í aðra ferð. Trúlega verða því farnar þrjár ferðir yfir þetta tímabil.“ Um hverja helgi fara fjölmargir Íslendingar utan til að horfa á leiki í enska boltanum, bæði í skipulögðum ferðum ferðaskrifstofa og á eigin vegum. „Ég hef aldrei farið í fótboltaferð án þess að hitta einhvern sem er líka að fara á leik í enska boltanum. Það er hluti af því að vera Íslendingur á veturna – að styðja sitt lið í Englandi,“ segir hann og hlær.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Samstarf Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Samstarf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira