Stærst í leigurisa með bréf fyrir 3,1 milljarð Haraldur Guðmundsson skrifar 11. janúar 2017 08:00 Heimavellir og Ásabyggð sameinuðust rétt fyrir áramót og úr varð stærsta leigufélag landsins.
Tómas Kristjánsson, fjárfestir Viðskiptafélagarnir Tómas Kristjánsson og hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir eru stærstu eigendur Heimavalla og eru hlutabréf þeirra í leigufélaginu metin á 3,1 milljarð króna. Fjárfestingarfélög þeirra fóru inn í hluthafahópinn rétt fyrir áramót og eignuðust þau þá alls 23,2 prósenta hlut í Heimavöllum sem varð á sama tíma að langstærsta leigufélagi landsins með um tvö þúsund íbúðir um allt land. Þetta má lesa úr nýjum hluthafalista Heimavalla sem dagsettur er 2. janúar og Markaðurinn hefur undir höndum. Samkvæmt honum leiddi sameining félagsins við leigufélagið Ásabyggð á Ásbrú í Reykjanesbæ, sem þremenningarnir höfðu átt hlut í frá árinu 2007, til þess að Gani ehf., í eigu Tómasar, og Snæból ehf., fjárfestingarfélag Finns og Steinunnar, eru stærstu einstöku eigendur Heimavalla með sitthvor 9,4 prósentin. Þar að auki á Klasi fjárfesting ehf. 4,6 prósenta hlut en Gani og Snæból eiga aftur samanlagt 95 prósent í því félagi. Fjölskyldufyrirtækið Stálskip, í eigu hjónanna Guðrúnar Lárusdóttur og Ágústs Sigurðssonar, var stærsti hluthafi Heimavalla áður en sameiningin gekk í gegn og átti þá 14,3 prósent. Það heldur nú á 9,1 prósenti hlutafjárins. Þar á eftir kemur tryggingafélagið Sjóvá með 5,8 prósent en Túnfljót ehf., í eigu Magnúsar Pálma Örnólfssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstöðumanns gjaldeyrismiðlunar Glitnis, á 5,5 prósent. Hluthafar félagsins eru alls 66 talsins og í þeim hópi má meðal einnig finna sjö lífeyrissjóði, Kviku fjárfestingarbanka, tryggingafélagið VÍS og Kaupfélag Skagfirðinga.Finnur Reyr Stefánsson, fjárfestirGuðbrandur Einarsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, segir í skriflegu svari við fyrirspurn Markaðarins að stuðst hafi verið við gengið 1,55 krónur á hlut í síðustu viðskiptum með bréf leigufélagsins. Markaðsverðmæti þess miðað við útistandandi hlutafé sé því 13.511 milljónir króna. Tilkynnt var um sameiningu Heimavalla og Ásabyggðar í byrjun nóvember. Íbúðir sem Heimavellir keypti af Íbúðalánasjóði mynduðu þá stóran hluta af eignasafni félagsins. Ásabyggð, sem hét áður Háskólavellir, samdi árið 2008 við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, um kaup á 1.500 íbúðum auk atvinnuhúsnæðis og lóða á gamla varnarliðssvæðinu á Ásbrú. Leigufélagið keypti alls 89 fasteignir, þar af 76 fjölbýlishús, á 11,6 milljarða króna. Eins og kom fram í frétt DV í október 2015 greiddu þáverandi eigendur Ásabyggðar alls 4,1 milljarð króna til ríkisins fyrir eignirnar árið 2008. Eigendur félagsins greiddu aftur á móti aldrei milljarðana 7,5 sem ríkið átti að fá árin á eftir. Kadeco neyddist því í september 2014 til að leysa til sín 732 íbúðir og yfirtók einnig 7,5 milljarða króna skuld leigufélagsins við ríkissjóð en fékk á móti skuldabréf að verðmæti 2,5 milljarða króna. Eigendur Ásabyggðar héldu eftir 713 íbúðum sem þeim hafði tekist að koma í útleigu.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Samstarf Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Samstarf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira