Öruggir sigrar hjá Hrafnhildi og Eygló Ósk | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. janúar 2017 10:30 Hrafnhildur á fullri ferð. vísir/ernir
Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir, okkar fremstu sundkonur, unnu örugga sigra í 100 metra bringusundi og 200 metra baksundi á Reykjavíkurleikunum í gær.Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Laugardalslauginni í gær og tók meðfylgjandi myndir. Hrafnhildur varð hlutskörpust í 100 metra bringusundi en hún synti á tímanum 1:08,86 mínútum. Hin 17 ára Sunna Svanlaug Vilhjálmsdóttir varð önnur á 1:16,04. Eygló Ósk kom langfyrst í bakkann í 200 metra baksundi. Hún synti á 2:12,88 sem er talsvert frá Íslandsmeti hennar (2:08,84). Hin færeyska Signhild Joensen lenti í 2. sæti á 2:20,09. Á laugardaginn háði Eygló Ósk mikið einvígi við hina dönsku Mie Östergaard Nielsen í 100 metra baksundi. Nielsen er ríkjandi Evrópumeistari í greininni og hún vann nauman sigur á Eygló. Nielsen kom í bakkann á 1:01,65 en Eygló á 1:02,27. Eygló vann aftur á móti sigur í 50 metra skriðsundi á laugardaginn og Hrafnhildur hrósaði sigri í 50 metra bringusundi. Sunna Svanlaug varð hlutskörpust í 200 metra bringusundi. Í 50 metra baksundi karla börðust Daninn Magnus Jakupsson og Kristinn Þórarinsson um sigurinn. Svo fór að Jakupsson hafði betur. Hann synti á 25,90 sekúndum en Kristinn á 26,67. Í undanrásunum munaði hins vegar aðeins 30/100 úr sekúndu á þeim. Kristinn vann hins vegar sigur í 200 metra fjórsundi á tímanum 2:12,57 mínútum.
Sund Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Fleiri fréttir Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Sjá meira