Innlent

Óttast að síðustu fréttir skaði ímynd Grænlands

Kristján Már Unnarsson skrifar
Séð yfir höfnina í Nuuk.
Séð yfir höfnina í Nuuk. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Grænlendingar sem og Íslendingar búsettir á Grænlandi hafa verulegar áhyggjur af ímynd og orðspori Grænlendinga á alþjóðavettvangi og óttast að fréttir undanfarnar vikur bæti ekki úr skák. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. 

Íslendingar þekktu þetta vel á eigin skinni áður en leiðtogafundurinn árið 1986 kom Íslandi fyrst almennilega á heimskortið. Þá sjaldan sem fréttir birtust af Íslendingum í erlendum fjölmiðlum þá voru þær um tíma helst af drykkjuskap unglinga í miðbæ Reykjavíkur.

Og kannski hefur það verið ímyndarvandi sem Íslendingar sem smáþjóð hafa talið sig þurfa að glíma við frá fyrstu tíð því haft var á orði að sjálf Landnámabók hefði verið skrifuð í þeim tilgangi að menn þyrftu að geta svarað erlendum mönnum að þeir væru ekki komnir af þrælum og illmennum heldur höfðingjum. 

Í Nuuk, höfuðstað Grænlands, hafa fréttamenn Stöðvar 2 fundið samskonar áhyggjur, bæði af hálfu Grænlendinga sem og Íslendinga sem þar eru búsettir; að þá sjaldan sem fréttir birtist af Grænlandi erlendis þá séu þær af neikvæðum toga. Þær séu af félagslegum vandamálum, drykkjuskap og glæpum. Umheimurinn fái sjaldan jákvæðar fréttir af grænlensku samfélagi. 

Og víst er að fréttirnar nú í janúar fegra ekki myndina; fyrst af morði og tveimur sjálfsvígum í upphafi árs í bænum Tasiilaq á austurströnd Grænlands og síðan af tveimur grænlenskum sjómönnum sem grunaðir eru um morð á Íslandi.

Hrafn Jökulsson, sem hefur lengi unnið að sterkari tengslum á milli grænlensku og íslensku þjóðarinnar, benti á það í fréttum Stöðvar 2 á dögunum að sjálfstraust Grænlendinga væri enn brotið eftir niðurlægingu Dana og lítið þyrfti til þess að því væri hnekkt. 





Þjóðminjasafn Grænlands í forgrunni. Ofar má sjá nýleg ibúðarhús í Nuuk.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Ræðismannsskrifstofa Íslands í Nuuk.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Tengdar fréttir

Grænlendingar byggja upp nýtt flugvallakerfi

Grænlensk stjórnvöld áforma stórfelldar flugvallaframkvæmdir sem gjörbreyta flugsamgöngum við landið og gætu styrkt tengsl Íslands og Grænlands enn frekar.

Grænlendingar miður sín

Lögreglan segir fólk hafa haft samband sem hafi orðið fyrir aðkasti fyrir það eitt að vera frá Grænlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×