Enski boltinn

Bent skoraði fyrir bæði lið á Pride Park

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Darren Bent fagnar eftir að hafa skorað í rétt mark.
Darren Bent fagnar eftir að hafa skorað í rétt mark. vísir/getty
Derby County og Leicester City þurfa að mætast aftur í 4. umferð ensku bikarkeppninnar.

Liðin mættust á Pride Park í kvöld og skildu jöfn, 2-2.

Darren Bent skoraði fyrstu tvö mörk leiksins, annað í eigið mark og hitt í rétt mark.

Bent skoraði sjálfsmark á 8. mínútu en bætti upp fyrir mistökin þegar hann jafnaði metin á 21. mínútu. Craig Bryson skoraði svo annað mark Derby á 40. mínútu og staðan í hálfleik því 2-1.

Ensku meistararnir biðu fram á 86. mínútu með að jafna leikinn. Þar var að verki fyrirliðinn Wes Morgan. Lokatölur 2-2 í hörkuleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×