Viðskipti innlent

Ásdís Rósa nýr framkvæmdastjóri Landmark

atli ísleifsson skrifar
Ásdís Rósa er lögfræðingur og löggiltur fasteignasali að mennt.
Ásdís Rósa er lögfræðingur og löggiltur fasteignasali að mennt. landmark
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landmark fasteignasölu. Hún tekur við starfinu af Magnúsi Einarssyni.

Ásdís Rósa er lögfræðingur og löggiltur fasteignasali að mennt og hefur starfað í fasteignageiranum í fimm ár.

Í tilkynningu frá Landmark er haft eftir Ásdísi Rósu að hún taki við góðu búi á Landmark og næstu misseri séu mjög spennandi á fasteignamarkaði. „Framboð nýbygginga fer að aukast á árinu og mun það að nýju færa meira líf í markaðinn. En númer eitt er að ástunda vönduð vinnubrögð og sinna viðskiptavinum vel. Það verður mitt markmið.“

Í tilkynningu frá Landmark segir að Magnús hafi verið aðaleigandi Landmark og byggt fyrirtækið upp allt frá stofnun. Hann hafi ákveðið að hverfa til annarra starfa og selt öðrum hluthöfum sinn hlut í fyrirtækinu.

Starfsmenn Landmark eru tólf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×