Enski boltinn

Stórskotahríð þegar Skytturnar sigruðu Southampton

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Danny Welbeck sneri aftur með látum i byrjunarlið Arsenal.
Danny Welbeck sneri aftur með látum i byrjunarlið Arsenal. vísir/getty
Arsenal gjörsamlega gekk frá Southampton í lokaleik dagsins í 32-liða úrslitum enska bikarsins á St Mary's vellinum en leiknum lauk með 5-0 sigri gestanna frá London.

Southampton sló Arsenal úr leik í enska deildarbikarnum á dögunum en lærisveinar Arsene Wenger sem sat í stúkunni í dag vegna leikbanns náðu svo sannarlega að koma fram hefndum í dag.

Danny Welbeck sem var í byrjunarliði Arsenal í fyrsta sinn í níu mánuði eftir meiðsli kom gestunum 2-0 yfir í fyrri hálfleik en Theo Walcott bætti við þriðja marki Arsenal áður en fyrri hálfleikur kláraðist.

Walcott sem kom upp úr unglingastarfi Southampton bætti við öðru marki sínu og fjórða marki Arsenal á 69. mínútu en hann fullkomnaði þrennuna fimm mínútum fyrir leikslok.

Sannfærandi 5-0 sigur staðreynd og er Arsenal því komið í 16-liða úrslit bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×