Ingibjörg Pálma komin í hóp tuttugu stærstu hluthafa Haga Hörður Ægisson skrifar 27. janúar 2017 11:38 Félag Ingibjargar Pálmadótotur, aðaleiganda 365 miðla, er komið í hóp tuttugu stærstu hluthafa Haga.
Félag í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleiganda fjölmiðlafyrirtækisins 365, er komið í hóp tuttugu stærstu hluthafa verslunarfyrirtækisins Haga með 1,28% eignarhlut. Miðað við núverandi gengi bréfa Haga er hluturinn metinn á um 770 milljónir króna. Ingibjörg á bréfin í Högum, samanlagt 15 milljónir hluta, í gegnum fjárfestingafélagið SM Investments. Greint var frá því í lok nóvember í fyrra að félag Ingibjargar hefði eignast 0,93% hlut í smásölurisanum, sem þá var metinn á um 600 milljónir, en sá eignarhlutur dugði ekki til að skila félaginu á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Haga. Ingibjörg hefur núna nýverið bætt við sig fjórum milljónum hluta í Högum. Þá á félagið Minna Hof ehf., sem er í eigu Lilju Pálmadóttur, systur Ingibjargar, jafnframt 0,33% hlut í Högum. Ingibjörg og Lilja eru dætur Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaupa. Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmaður Ingibjargar, og fjölskylda hans voru sem kunnugt er aðaleigendur Haga, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Bónuss og Hagkaupa. Fjölskyldan missti verslunarveldið úr sínum höndum fyrir um sjö árum þegar Arion banki yfirtók eignarhaldsfélagið 1998 sem átti þá um 95,7% hlut í Högum. Bankinn seldi síðar hlut sinn í félaginu til hóps einkafjárfesta og lífeyrissjóða og í kjölfarið voru Hagar skráðir í Kauphöll Íslands. Eigendur Haga í dag eru að langstærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir, með samanlagt meira en 50% hlut í fyrirtækinu, en enga aðra einkafjárfesta er að finna á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa félagsins. Gengi bréfa í Högum hafa lækkað um fimm prósent frá áramótum en markaðsvirði félagsins nemur um 60 milljörðum króna.
Tengdar fréttir Ingibjörg Pálma eignast 1% í Högum Samkvæmt núverandi gengi bréfa Haga er eignarhluturinn metinn á tæpar 600 milljónir króna. 22. nóvember 2016 09:23 Mest lesið Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira
Ingibjörg Pálma eignast 1% í Högum Samkvæmt núverandi gengi bréfa Haga er eignarhluturinn metinn á tæpar 600 milljónir króna. 22. nóvember 2016 09:23