Viðskipti innlent

Borgin vill ekki selja virkjunina

Haraldur Guðmundsson skrifar
Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson. vísir/ernir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri greindi í gær frá ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur um að hafna beiðni bandarískra fjárfesta um viðræður um sölu á Hellisheiðarvirkjun. „Thanks, but no thanks," sagði Dagur í Facebook-færslu.

Markaðurinn, viðskiptablað Fréttablaðsins, sagði á miðvikudag frá tilboði MJDB ehf. í hluti Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar í virkjuninni. Orkuveita Reykjavíkur hafnaði um miðjan desember tilboði sama félags í eignina í annað sinn. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×