Borgarráð hafnar sölu á Hellisheiðarvirkjun til bandarískra fjárfesta Haraldur Guðmundsson skrifar 26. janúar 2017 14:53 Hellisheiðarvirkjun er ellefu ára gömul jarðvarmavirkjun.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir borgarráð í dag hafa hafnað að ganga til viðræðna við bandaríska fjárfesta um sölu á Hellisheiðarvirkjun. „Thanks, but no thanks," segir Dagur í Facebook-færslu sem hann birti fyrr í dag. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, greindi í gær frá tilboði einkahlutafélagsins MJDB í eignarhluti Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar í virkjuninni. Sveitarfélögin þrjú fengu fyrr í mánuðinum tilboð í eignarhluti sína en Orkuveita Reykjavíkur (OR) hafnaði um miðjan desember tilboði sama félags í virkjunina í annað sinn.MJDB er að stærstum hluta í eigu Magnúsar B. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra hjá America Renewables í Kaliforníu, en í samtali við Markaðinn vildi hann ekki tjá sig um tilboðin eða það hvort aðrir innlendir eða erlendir fjárfestar koma að þeim. Samkvæmt stöðuuppfærslu borgarstjóra er ljóst að bandarískir fjárfestar komu að tilboðinu með honum. Hellisheiðarvirkjun er í eigu Orku náttúrunnar (ON), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Reykjavíkurborg á 93,54 prósenta hlut í OR, Akraneskaupstaður 5,53 prósent og Borgarbyggð 0,93 prósent. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur hefur ekki farið fram verðmat á Hellisheiðarvirkjun. Bókfært virði virkjana ON í árslok 2015 var um 950 milljónir Bandaríkjadala eða 107 milljarðar króna miðað við núverandi gengi. Bróðurpart þeirrar upphæðar má rekja til Hellisheiðarvirkjunar þar sem Nesjavallavirkjun hefur verið afskrifuð að verulegu leyti og Andakílsárvirkjun er komin til ára sinna.
Mest lesið Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira