Wenger viðurkennir að Xhaka fékk ekki hæfileika til að tækla í vöggugjöf Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. janúar 2017 15:30
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, viðurkennir að Granit Xhaka, miðjumaður liðsins, er ekki náttúrlega góður tæklari en svissneski landsliðsmaðurinn fékk sitt annað rauða spjald um helgina. Xhaka verður í leikbanni í næstu fjórum leikjum Arsenal eftir að Jon Moss sýndi honum beint rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingu á Steven Defour, leikmann Burnley og samherja Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Wenger segir að Xhaka ætlaði sér ekkert illt með tæklingunni en játar því að þessi 24 ára gamli miðjumaður þarf að æfa tæklingarnar aðeins betur.„Ég er búinn að horfa á þetta aftur og þetta var ekki hættuleg tækling heldur klaufaleg. Maður þarf samt að sætta sig við það að það er hægt að refsa mönnum fyrir þetta og við lærum af þessu,“ sagði Wenger á blaðamannafundi sínum í dag. „Xhaka ætla ekki að meiða neinn en því miður verðum við án hans í næstu fjórum leikjum á þessum mikilvæga kafla tímabilsins.“ „Hann er ekki náttúrlega góður tæklari en hann er gáfaður leikmaður sem staðsetur sig vel. Hann er ekki alveg búinn að ná tökum á tækninni sem er að tækla. Ég myndi hvetja hann til að tækla ekki heldur halda sér á fótunum. Að tækla er eitthvað sem þú lærir ungur að aldri og þú getur alltaf bætt þig, en þegar þú mætir einhverjum maður á mann er betra að þú standir í fæturnar,“ segir Arsene Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Sjá meira