Innlent

Þurftu að lenda vegna bilunar

Samúel Karl Ólason skrifar
Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni er óvíst hvenær þyrlan kemst aftur í gagnið.
Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni er óvíst hvenær þyrlan kemst aftur í gagnið. Vísir/Anton
Lenda þurfti TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, á Keflavíkurflugvelli í dag þegar bilun kom upp í tveimur af þremur vökvakerfum hennar. Þyrlan var við blindflugsæfingar við braut 19 þegar bilunin kom upp.

Áhöfnin tilkynnti strax um bilunina, þá var klukkan 14.22. Var viðbragðsáætlun Keflavíkurflugvallar virkjuð, eins og venja er við slíkar aðstæður.

Þyrlan lenti heilu og höldnu þremur mínútum síðar og var þá viðbúnaðurinn afturkallaður. Snarræði og þjálfun áhafnarinnar hafði mikið að segja því aðstæður voru erfiðar. Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar vinna nú að skoðun og viðgerð vélarinnar í flugskýli Landhelgisgæslunnar í Keflavík.

Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni er óvíst hvenær hún kemst aftur í gagnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×