Nefndarformennskur allar í skaut stjórnarflokkanna Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. janúar 2017 13:02 Frá atkvæðagreiðslu á Alþingi. Vísir/Anton
Fjórar af átta fastanefndum Alþingis funduðu í dag í fyrsta sinn eftir að þing kom saman og venju samkvæmt kusu þær sér formann. Formennskurnar féllu allar í skaut stjórnarflokkanna. Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörinn formaður fjárlaganefndar. Þingflokksformaður Viðreisnar, Hanna Katrín Friðriksson, var kjörin fyrsti varaformaður og Theodóra S. Þorsteinsdóttir frá Bjartri framtíð er annar varaformaður fjárlaganefndar. Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar, var kjörinn formaður velferðarnefndar á fyrsta fundi hennar í dag. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er fyrsti varaformaður og samflokksmaður hans Ólöf Nordal er annar. Valgerður Gunnarsdóttir, Sjálfstæðismaður úr Norðausturkjördæmi, var kjörinn formaður umhverfisnefndar fyrr í dag. Viðreisnarþingmaðurinn Pawel Bartoszek er fyrsti varaformaður og Bryndís Haraldsdóttir úr Sjálfstæðisflokki er annar varaformaður. Þá var Óli Björn Kárason, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kjörinn formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Félagar hans úr stjórnarliðinu, Jón Steindór Valdimarsson úr Viðreisn og Vilhjálmur Bjarnason Sjálfstæðisflokki, voru kjörnir varaformenn. Nefndirnar fjórar sem eftir eru munu funda á morgun. Þær eru allsherjar- og menntamálanefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanfend og atvinnuveganefnd. Heimildir Vísis herma að þær muni, að óbreyttu, einnig falla í skaut stjórnarflokkanna.
Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Sjá meira