Ferguson ánægður með Mourinho: „Hann er að ná tökum á félaginu“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. janúar 2017 11:00 Sir Alex Ferguson og José Mourinho mættust oft á vellinum. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, er ánægður með vegferðina sem José Mourinho er á með liðið en tæp þrjú ár tæp eru síðan Skotinn kvaddi eftir sigursæl 27 ár í starfi. Hann er enn þá duglegur að mæta á leiki og er í góðu sambandi við félagið. „Mér finnst hann vera að standa sig frábærlega,“ segir Sir Alex í einkaviðtali við breska ríkissjónvarpið en Mourinho er þriðji stjóri Manchester United síðan Skotinn hætti. Mourinho vann fyrstu þrjá leiki sína í ensku úrvalsdeildinni en eftir það fékk liðið aðeins sex stig í næstu sjö leikjum. United er búið að vera fast í sjötta sæti síðan í lok október sama hversu marga leiki liðið vann í röð þegar það loksins komst í gang aftur. „Það sjá allir að hann er að ná tökum á félaginu. Liðið er að spila virkilega vel og hann er búinn að vera óheppinn. Hann er búinn að horfa upp á sex 1-1 jafntefli og í öllum þeim leikjum var United miklu betra liðið. Ef það væri ekki fyrir öll þessi jafntefli væri United að keppa við Chelsea á toppnum,“ segir Sir Alex. Búið er að senda Mourinho tvívegis upp í stúku á tímabilinu en Ferguson finnst Portúgalinn vera mun rólegri síðustu vikurnar. United mætir Hull í undanúrslitum deildabikarsins á morgun en liðið er ósigrað í síðustu 17 leikjum. „José er að finna lausnir núna. Það var tímabil fyrr á leiktíðinni þar sem dómarnir voru ekki að falla með honum og þá báru tilfinningarnar hann ofurliði. Núna er hann miklu rólegri og heldur stjórninnni. Það sem ég sé núna frá United-liðinu er að það er spegilmynd stjórans,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Sjá meira