Enski boltinn

Klopp: Coutinho getur látið drauma sína rætast hjá okkur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Klopp og Coutinho eftir undirritunina í morgun.
Klopp og Coutinho eftir undirritunina í morgun. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að nýr samningur Philippe Coutinho við félagið sé mikil og stór yfirlýsing.

Í morgun var tilkynnt að Coutinho hafi skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið og orðið um leið launahæsti leikmaður þess. Ekkert riftunarákvæði er í samningnum, samkvæmt fréttum enskra miðla.

Coutinho hafði verið orðaður við fjölda liða, þeirra á meðal spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid, í fjölmiðlum en nú er ljóst að hann verður um kyrrt á Anfield.

„Þetta eru frábærar fréttir og ég veit að allir þeir sem eru tengdir Liverpool verða hæstánægðir þegar þeir heyra þessar fregnir,“ sagði Klopp í viðtali sem birtist á heimasíðu Liverpool.

Sjá einnig: Coutinho orðinn launahæstur eftir nýjan fimm ára samning

„Ég held að allir viti hversu frábær fótboltamaður hann er. En það sjá ekki allir hversu ótrúlega jákvæður hann er og hversu stór og mikil áhrif hann hefur á leikmannahópinn.“

Klopp segir ekki nokkur vafi á því að Coutinho sé í heimsklassa. „Það er mjög sérstakt að hann vilji vera hér, halda áfram að bæta sig og taka þátt í okkar verkefni.“

„Við höfum mikla trú á verkefni okkar en þegar leikmaður eins og Phil ákveður að gera langtímaskuldbindingu við okkur sýnir það að fleiri hafa trú á því. Hann veit að hann getur látið drauma sína rætast hjá Liverpool. Þetta er stór og mikil yfirlýsing.“


Tengdar fréttir

Coutinho valinn besti Brassinn í Evrópu

Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool og brasilíska landsliðsins, var í dag valinn besti brasilíski leikmaðurinn sem leikur í Evrópu.

PSG vill Coutinho í janúar

Paris Saint Germain er að undirbúa 40 milljónir punda tilboð í Philippe Coutinho, stjörnu Liverpool, í janúar-glugganum, en PSG hefur haft áhuga lengi á kappanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×