Stjarnan og Grindavík skildu jöfn í Kórnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2017 22:02 Hilmar Árni Halldórsson var í byrjunarliði Stjörnunnar í kvöld. vísir/ernir
Stjarnan og Grindavík skildu jöfn, 1-1, í A-riðli Fótbolti.net-mótsins en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi í kvöld. Stjörnumenn höfnuðu í öðru sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð en Grindavík endurheimti sæti sitt á meðal þeirra bestu eftir að enda í 2. sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra. Andri Rúnar Bjarnason kom Grindavík yfir á 30. mínútu en þessi sterki framherji að vestan gekk endanlega í raðir Grindavíkur í haust. Hann var á láni hjá suðurnesjaliðinu frá Víkingi á síðustu leiktíð og hjálpaði því að komast upp um deild. Hólmbert Aron Friðjónsson, sem gekk frá endanlegum félagaskiptum sínum úr KR í Stjörnuna í haust, jafnaði leikinn fyrir Garðbæinga á 42. mínútu og fleiri mörk voru ekki skorun. Kristijan Jajalo, markvörður Grindavíkur, átti mjög góðan leik í markinu og kom í veg fyrir að Stjarnan tryggði sér sigurinn í seinni hálfleik en þessi öflugi Bosníumaður spilaði frábærlega fyrir Grindjána síðasta sumar. Grindavík hefur lokið keppni í riðlinum en það gerði tvö jafntefli og tapaði einum leik. Stjarnan er með fjögur stig eftir sigur á ÍA og jafnteflið í kvöld og getur tryggt sér sæti í úrslitaleiknum með sigri á Ólafsvíkingum í lok mánaðarins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Íslenski boltinn Onana haldið oftast hreinu Enski boltinn Fleiri fréttir Katrín ekki með slitið krossband „Átti þetta tækifæri skilið“ Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Bergrós besti dómari Bestu deildar kvenna Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt „Þú ert skilgreindur af nútíðinni“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Uppgjörið: Breiðablik - Valur 2-2 | Óbreytt staða á toppnum eftir jafntefli á Kópavogsvelli „Ég verð bara að setja fleiri í vegginn næst og standa í nærhorninu“ Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið Fyrirliði Íslandsmeistaranna hætt Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Vaknar Árbærinn aftur? Sækja innblástur til kvennaliðsins: „Frábært að fylgjast með þessu“ Sjáðu Andra Rúnar skjóta Fram í kaf „Áfram Breiðablik, það er það eina sem ég veit núna“ Einkunnir stórleiksins á Hlíðarenda: Telma og vörn Blika bar af Hrafnhildur Ása efnilegust og Telma hlaut gullhanskann „Ótrúlega stolt af hópnum hvernig við nálguðumst þetta tímabil“ „Þessi er klárlega mjög sérstakur“ „Agla María hélt liðsfund eftir þann leik og hvatti liðið áfram“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Uppgjörið: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Sjá meira